Flýtilyklar
Söngkeppni framhaldsskólanna.
13.04.2026
Stefanía hefur verið nemandi við Tónfell um árabil, m.a. hefur hún lært á píanó og söng en aðallhljóðfærið hennar hefur verið þverflauta og hefur hún lokið miðprófi í þverflautuleik. Hún er nú nemandi í gítarleik hjá Friðriki Jónssyni.
Stefanía flutti eigið lag og texta og gerði það frábærlega vel og hún hefur verið að semja eigin tónlist sem er frábært og gaman þegar nemendur fá tækifæri til að flytja eigin tónsmíðar.
Við óskum Stefaníu innilega til hamingju með góða frammistöðu og velfarnaðar í áframhaldandi tónlistarflutningi.