Flýtilyklar
ÞEMA - TÓNLEIKAR
Tónlistarfólkið sem um ræðir voru þau Gunnar Þórðarson, Björgvin Halldórsson, Magnús Eiríksson, Megas, Bonnie Tyler og Dolly Parton.
Það er eftirsjá af þessu góða tónlistarfólki, en tónlistin þeirra lifir áfram og mjög við hæfi að vera með tónleika þeim til heiðurs. Valin voru tvö lög eftir eða með hverjum og einum og síðan völdu kennarar kandídata í hvert lag og er óhætt að segja að afar vel hafi til tekist.
Hljóðfæraleikararnir voru allir af mið-og elsta stigi en söngvarar voru af öllum stigum, og framtíðin er björt hjá okkur á tónlistarsviðinu því þau stóðu sig öll frábærlega og tónleikarnir voru hinir skemmtilegustu og lagavalið fjölbreytt.
Það voru engin smá lög sem um var að ræða td eins og Ég veit þú kemur með hinni stórbrotnu hljómsveit Trúbrot, þar sem öllu var til tjaldað, meira að segja fengum við flautusólóið góða, Þorparann eftir Magga Eiríks sem er búið að vera vinsælt og er enn og Total Eclipse sem er eitt vinsælasta lag Boinne Tyler og sló rækilega í gegn upp úr 1980.
Við óskum nemendum okkar til hamingju með stórgóða tónleika og þökkum þeim fyrir alla vinnuna við að undirbúa tónleikana og vera bara svona frábær eins og þau eru.
Kennarar eiga hrós skilið því þetta er þeirra verk að stærstum hluta og þeir eru utanumhaldið, til hamingju með nemendur ykkar Máni, Frikki, Magga, Wes, Sóley og Hlín.
Á meðfylgjandi mynd má sjá söngnemendur á yngsta stigi sem eiga framtíðina fyrir sér.