Undir sömu stjörnu

Hátíđarstund var á Eskifirđi í gćr ţar sem nýstofnuđ Ţjóđarópera okkar hélt óperutónleika ásamt Sinfóníuhljómsveit Austurlands og gestum og nýstofnuđum ţjóđaróperukór skipuđum söngfólki úr heimabyggđ ásamt félögum úr Kammerkór Norđurlands, ađ viđstöddu fjölmenni, menningarráđherra og bćjarstjórum Múlaţings og Fjarđarbyggđar en sú síđarnefnda skrifađi undir samstarfsyfirlýsingu viđ verkefniđ sem er frábćrt fyrir menningarlífiđ hér eystra.

Handritsgerđ og leikstjórn var í höndum Ólafs Egils Egilssonar.

Söngvarahópur Óperunnar er skipađur Gunnari Birni Jónssyni, Hildigunni Einarsdóttur, Kristínu Einarsdóttur Mantyla og Kristjáni Jóhannessyni ásamt gestasöngvaranum Hlín Pétursdóttir Behrens sem er söngkona og söngkennari hér hjá okkur á Austurlandi.

Ţetta voru ađrir tónleikarnir í ţessari tónleikaröđ, en ţeir fyrstu fóru fram í Hofi á Akureyri 18.október síđastliđinn og síđan verđa tónleikar haldnir í Hljómahöllinni í Reykjanesbć og Skálholtsdómkirkju og er ţađ heimafólk á hverjum stađ sem sér um undirleik og kórsöng en söngvarahópurinn kemur fram á öllum tónleikunum, en gestasöngvarinn kemur líka frá hverjum stađ fyrir sig.

Leikararnir Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Örn Arnarsson tengdu atriđin listavel saman og sögđu frá tilurđ tónlistarinnar og höfunda, og var fyrsta arían frá árinu 1609 úr L´Orfeo eftir tónskáldiđ Monteverdi og síđasta arían var úr óperunni Ragnheiđi eftir Gunnar Ţórđarson frá árinu 2013.

En ađ stóra málinu, ţađ voru fimm nemendur í söng viđ skólann okkar sem voru í nýstofnuđum Ţjóđaróperukór og kennarinn ţeirra hún Hlín Pétursdóttir Behrens sá um ćfingar og ţjálfun og var svo gestasöngvari eins og áđur hefur komiđ fram.

Síđan voru kennarar auđvitađ í hljómsveitinni sem hélt öllu frábćrlega saman undir styrkri stjórn Richard Schwennicke.

Stórkostlegir tónleikar međ frábćru listafólki hvort sem var í söngvarahópnum, kórnum eđa hljómsveitinni og viđ óskum nemendum okkar og kennurum og Hlín innilega til hamingju međ frábćran menningarviđburđ.

 


Svćđi

Tónlistarskólinn í Fellabć

Einhleypingi 2, 700 Egilsstađir / Sími: 4 700 646 / Netfang: tonlistarskoli.fellabaer@mulathing.is


Skólastjóri: Drífa Sigurđardóttir